Fyrsti íslenski keppandinn stígur á svið á EM í klassískum kraftlyftingum á morgun miðvikudag. Það er Ingvi Örn Friðriksson sem keppir í -105 kg flokki unglinga.
Ingvi keppti á RIG í janúar en þar fyrir utan er þetta fyrsta alþjóðamótið hans.
Bein útsending frá mótinu er hér: http://goodlift.info/live.php
en keppnin i flokki Ingva hefst kl. 14.00 á íslenskum tíma.
Við óskum honum góðs gengis.