Íslendingar eignuðust tvo norðurlandameistara í kraftlyftingum á
Norðurlandamóti unglinga sem fór fram í Finlandi um helgina. Keppt var annars vegar án búnaðar og hins vegar með búnaði.
Í klassískum kraftlyftingum, án búnaðar, varð Dagfinnur Ari Normann, Stjarnan, norðurlandameistar í -74 kg flokki.
Matthildur Óskarsdóttir, Grótta, vann til bronsverðlauna i -72 kg flokki telpna.
Þrír strákar kepptu með búnaði.
Guðfinnur Snær Magnússon, Breiðablik, varð Norðurlandameistari í -120 kg flokki drengja og bætti jafnframt íslandsmet drengja í öllum greinum.
Daníel Geir Einarsson, líka úr Breiðablik, vann silfurverðlaun í +120 kg flokki unglinga og Sindri Freyr Arnarson, Massi, lenti í 4.sæti í -74 kg flokki.
Góðar bætingar voru gerðar á íslandsmetum unglinga á mótinu og voru þjálfarar, Grétar Hrafnsson og Ingimundur Björvinsson að vonum sáttir við sína menn.
Sturlaugur Gunnarsson kláraði alþjóðlega dómaraprófið á mótinu.
HEILDARÚRSLIT
Sturlaugur Gunnarsson kláraði alþjóðlega dómaraprófið á mótinu.
HEILDARÚRSLIT