Á Heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum sem haldið var í Litháen í sumar starfaði stangarmaður, sem sýndi af sér vítaverða hegðun sem byggðist á mismunun á grundvelli kynþáttar.
Alþjóða kraftlyftingasambandið (IPF) og Evrópska kraftlyftingasambandið (EPF) hafa sent frá sér yfirlýsingar þar sem þau fordæma hvers kyns kynþáttfordóma og fordóma af öllu tagi. Litháíska kraftlyftingasambandið hefur úrskurðað viðkomandi stangarmann í ævilangt bann.
Kraftlyftingasamband Íslands (KRAFT) tekur heilshugar undir yfirlýsingar IPF og EPF. Í lögum sambandsins segir orðrétt:
KRAFT starfar sjálfstætt og er hlutlaust hvað varðar stjórnmál og trúarbrögð. KRAFT skal gæta jafnréttis og jafnræðis, og skulu allir vera jafnir fyrir lögum, reglugerðum, reglum og ákvörðunum KRAFT og nefnda á vegum sambandsins. Aðilar skulu njóta fullra réttinda án tillits til kynferðis, kynhneigðar, trúarbragða, skoðana, þjóðernis, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Kraftlyftingasambands Íslands,
Laufey Agnarsdóttir,
formaður
____________________
Yfirlýsing frá IPF (Alþjóða kraftlyftingasambandið):
https://www.powerlifting.sport/about-ipf/news/news-detail/statement-from-the-international-powerlifting-federation
Yfirlýsing frá EPF (Evrópska kraftlyftingasambandið):
https://www.europowerlifting.org/news/news-detail/official-statement-of-the-european-powerlifting-federation
