Það styttist í Vestur-Evrópumótið sem verður haldið nk. helgi 17.-20. september í Lúxemborg. Frá Íslandi mæta 7 keppendur og munu allir keppa í klassískum kraftlyftingum. Yfirþjálfari er Hinrik Pálsson og honum til aðstoðar eru Andri Páll Ásgeirsson og Birgit Rós Becker. Kristleifur Andrésson mun dæma á mótinu.
Beint streymi er frá mótinu á goodlift.info .
Tímaplan íslenska hópsins:
FÖSTUDAGINN 18. SEPTEMBER – KL. 09.00 AÐ ÍSLENSKUM TÍMA
Holl 2:
Brynjar Elvarsson, -74 kg opinn flokkur.
LAUGARDAGINN 19. SEPTEMBER – KL. 09.00 AÐ ÍSLENSKUM TÍMA
Holl 2:
Birgit Rós Becker, -76 kg opinn flokkur.
SUNNUDAGINN 20. SEPTEMBER – KL. 09.00 AÐ ÍSLENSKUM TÍMA
Holl 1:
Hanna Jóna Sigurjónsdóttir, +84 kg opinn flokkur.
Þorbjörg Matthíasdóttir, +84 kg opinn flokkur.
Holl 2:
Alvar Logi Helgason, -120 kg opinn flokkur
Aron Friðrik Georgsson, -120 kg opinn flokkur.
Stefán Gunnlaugur Jónsson, +120 kg opinn flokkur.

