Skip to content

Vestur-Evrópumótið í klassískum kraftlyftingum

Helgina 17.-20. september var Vestur-Evrópumótið haldið í Lúxemborg. Frá Íslandi mætti vaskur 7 manna keppendahópur ásamt aðstoðarfólki. Góður andi var í hópnum eins og sást á Instagram reikningi KRAFT meðan á mótinu stóð. Íslensku keppendurnir tóku verðlaunasæti í nokkrum þyngdarflokkum, Íslandsmet voru slegin, persónulegar bætingar og lágmörkum náð fyrir alþjóðamót á næsta ári. Innilega til hamingju öllsömul !

Úrslit – kvennaflokkur.
Úrslit – karlaflokkur.
Úrslit á heimasíðu KRAFT.