Skráningu er lokið á Bikarmótið í kraftlyftingum með búnaði sem haldið verður laugardaginn 9. ágúst. Mótið er aldursflokkaskipt. Mótshaldari er Lyftingadeild UMFN – Massi og verður mótið haldið í íþróttahúsinu Norðurstíg 4 í Njarðvík. Endanleg tímaáætlun auglýst síðar. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 26. júlí. Keppnisgjald er 8.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
