Skráning er hafin á Æfinga- og byrjendamótið í kraftlyftingum (klassík og búnaður) sem fram fer laugardaginn 31. október. Mótshaldari er Lyftingadeild UMFN – Massi og verður endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir. Mótsstaður er íþróttahúsið við Norðurstíg 4 í Njarðvík.
Mótið er haldið í tengslum við dómarapróf Kraftlyftingasambandsins og klára prófkandídatar verklega þáttinn með því að dæma á mótinu. Skv. mótareglum KRAFT er þetta einnig lágmarkamót.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur þar sem fram kemur nafn, kennitala, félag og þyngdarflokkur. Þá skal taka fram hvort viðkomandi ætlar að keppa með eða án búnaðar. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn þeirra, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar.
Skráningu skal senda á netfangið massi@umfn.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 10. október. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 17. október. Keppnisgjald er 9.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
