Skip to content

Skráning er hafin á Æfinga- og byrjendamótið í kraftlyftingum

Skráning er hafin á Æfinga- og byrjendamótið í kraftlyftingum (klassík og búnaður) sem fram fer sunnudaginn 19. október. Mótshaldari er Kraftlyftingafélag Reykjavíkur og verður endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir. Mótið er haldið í tengslum við dómarapróf Kraftlyftingasambandsins og klára prófkandídatar verklega þáttinn með því að dæma á mótinu.

Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur þar sem fram kemur nafn, kennitala, félag og þyngdarflokkur. Þá skal taka fram hvort viðkomandi ætlar að keppa með eða án búnaðar. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn þeirra, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar.

Skráningu skal senda á netfangið akarason@gmail.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti sunnudaginn 28. september. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis sunnudaginn 5. október. Keppnisgjald er 8000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.