Í gær, sunnudaginn 9. ágúst, var síðasti dagur Evrópumeistaramótsins í bekkpressu (klassísk og með búnaði). Ísland átti þrjá fulltrúa á keppnispallinum þennan daginn, allir í bekkpressu með búnaði.
Jón Sigurður Gunnarsson var fyrstur á keppnispallinn af þeim þremur. Hann keppir í -59 kg opnum flokki. Jón Sigurður tók seríuna 100 kg / 140 kg / 160 kg. Flottar lyftur (þrjú hvít ljós í öllum lyftum) tryggði honum Evrópumeistaratitilinn. Síðasta lyftan var einnig bæting á hans eigin Íslandsmeti um 2.5 kg. Innilega til hamingju með metið, titilinn og mótið, Jón Sigurður !
Elín Melgar Aðalheiðardóttir keppir í -69 kg opnum flokki. Elín tók seríuna 127,5 kg / 127,5 kg / 135 kg. Smá sig kom í lyftu eitt, Elín negldi örugglega aðra lyftu en þriðja lyfta gekk ekki alveg upp í þetta skiptið. Innilega til hamingju með mótið, Elín !
Laufey Agnarsdóttir keppir í +84 kg opnum flokki. Hún tók seríuna 162,5 kg / 167,5 kg / 172,5 kg.
Fyrsta lyfta var nýtt Íslandsmet í öldungaflokki 1 og 2, sem voru síðan bætt aftur í lyftu tvö. Þriðja lyfta gekk ekki alveg upp í þetta skiptið. Innilega til hamingju með metin og mótið, Laufey !
Frábæru EM móti í bekkpressu lokið. Næstu mót hér innanlands eru Bikarmeistaramótið í kraftlyftingum með búnaði sem verður 15.ágúst og svo Menningarbikarinn í bekkpressu sem verður haldinn á Menningarnótt þann 22. ágúst. Næsta alþjóðamót er Heimsmeistaramót unglinga 19.-29. ágúst.



