Reglugerð um stigakeppni félaga hafði verið óbreytt síðan 2015. Á síðustu árum hefur mótum fjölgað sem og þátttakendum í öllum aldurshópum. Ný reglugerð endurspeglar þessa jákvæðu þróun með því að skipta stigakeppnum eftir aldursflokkum (unglingaflokkur, opinn flokkur og öldungaflokkur). Uppfærð reglugerð var samþykkt á stjórnarfundi 4. nóvember 2025 og mun taka gildi 1. janúar 2026.
Reglugerð um stigakeppni félaga – í gildi frá 1. janúar 2026.
