Reglugerð Kraftlyftingasambands Íslands (KRAFT) um styrkveitingar vegna keppni erlendis og annars kostnaðar hefur verið uppfærð. Með þessari reglugerðarbreytingu er lagt til að skýrari aðgreining verði gerð á þátttökurétti á alþjóðlegum mótum annars vegar og fjárhagslegum stuðningi sambandsins hins vegar.
Markmið breytingarinnar er að skapa sambandinu aukið svigrúm til að beina fjármagni og stuðningi í ríkari mæli að okkar fremsta afreksfólki, í samræmi við afreksstefnu sambandsins. Með því er stefnt að því að tryggja að þeir íþróttamenn sem náð hafa hvað lengst fái þann stuðning sem nauðsynlegur er til að geta verið samkeppnishæf á alþjóðavísu.
Jafnframt opnar breytingin á aukna möguleika fleiri keppenda til þátttöku á alþjóðlegum mótum, að uppfylltum viðeigandi skilyrðum, þó svo að þátttakan sé að hluta eða öllu leyti á þeirra eigin kostnað. Þannig getur sambandið sent fjölmennari lið til keppni, aukið sýnileika sinn á alþjóðavettvangi og skapað fleiri íþróttamönnum dýrmæta reynslu af keppni á alþjóðlegum mótum.
Sambandið hefur vaxið verulega á undanförnum árum og samhliða þeim vexti hefur orðið sífellt mikilvægara að nýta fjármuni þess með markvissum hætti. Stjórn telur að þessi breyting skapi betra jafnvægi milli þess að styðja sem best við okkar fremsta afreksfólk og skapa jafnframt fleiri íþróttamönnum tækifæri til þátttöku á alþjóðavettvangi.
Með þessu er markmiðið að styrkja afreksstarf sambandsins til framtíðar, auka alþjóðlega þátttöku og sýnileika og skapa sterkari umgjörð um áframhaldandi vöxt sambandsins.
Reglugerð Kraftlyftingasambands Íslands um styrkveitingar vegna keppni erlendis og annars kostnaðar
