Skip to content

Reglugerð KRAFT um agamál

Á Kraftlyftingaþingi 2026 voru samþykktar lagabreytingar sem snúa að viðurlögum við brotum á lögum og reglum sambandsins. Um beitingu viðurlaga er fjallað í nýrri reglugerð sem unnin var af laganefnd KRAFT fyrir hönd stjórnar KRAFT. Ný reglugerð var samþykkt á stjórnarfundi KRAFT 25. ágúst sl.
Hlekkur á Reglugerð KRAFT um agamál, en einnig má finna hana undir liðnum ,,Um KRAFT“ > ,,Reglugerðir o.fl.“ á heimasíðu KRAFT.

Til upplýsinga – Uppfærð 30 gr. í lögum KRAFT samþykkt á Kraftlyftingaþingi 2026 :

30. gr. Um meðferð deilumála og/eða kvartana
Stjórn KRAFT úrskurðar vegna mála og/eða kvartana sem upp kunna koma innan kraftlyftingahreyfingarinnar. Skal þá farið eftir, lögum, reglugerðum og reglum KRAFT, ÍSÍ og IPF, eftir því sem við á. Úrskurðir stjórnar eru kæranlegir til dómstóls ÍSÍ.

Brot á lögum, reglugerðum og reglum KRAFT getur varðað eftirfarandi viðurlögum gagnvart félögum:

1. Áminning.
2. Bann við þátttöku á mótum á vegum KRAFT.
3. Bann við að halda mót á vegum KRAFT.
4. Brottvísun úr móti á vegum KRAFT.
5. Sekt sem getur numið allt að 500.000 kr.

Brot á lögum, reglugerðum og reglum KRAFT getur varðað eftirfarandi viðurlögum gagnvart einstaklingum:

1. Áminning.
2. Brottvísun úr móti og/eða viðburði á vegum KRAFT.
3. Bann við að taka þátt á móti á vegum KRAFT.
4. Bann frá búningsklefum, keppnissvæði og/eða keppnisstað á mótum og/eða viðburðum á vegum KRAFT.
5. Bann frá allri þátttöku í kraftlyftingum á vegum félaga innan ÍSÍ.

Nánar skal fjallað um beitingu viðurlaga í reglugerð KRAFT um agamál, þar á meðal hæfi, málsmeðferð og kæruheimildir.