Stjórn KRAFT fjallaði á fundi sínum 4. nóvember sl. um fyrirkomulag við þátttöku öldunga í alþjóðamótum.
Stjórnin telur vegna fjölgunar öldunga sé tímabært að hafa lágmörk öldunga fyrir þátttöku á alþjóðamótum líkt og í opnum flokki og unglingaflokki. Á síðustu árum hefur keppendum í öldungaflokkum fjölgað mikið sem er mjög jákvæð þróun. Eins og í öðrum aldursflokkum þá eiga lágmörk að vera hvatning til bætinga. Við gerð lágmarkanna var miðað við lágmörk nágrannaþjóða okkar, Noreg og Danmörk í öldungaflokkum sem og meðaltöl HM og EM og tölur hjá okkar öldungum skoðaðar samhliða En skv. reglum IPF þá er ekki gert ráð fyrir að Master 3 og 4 geti keppt í opnum flokki og því var ákveðið að skoða aðeins lágmörk fyrir Master 1 og 2, auk þess sem aukningin er þar mest. Lágmörk í öldungaflokkum verða endurskoðuð á næsta ári með lágmörkum í opnum og unglingaflokki. Upplýsingar um lágmörk má finna á síðunni um afreksmál.
Stjórn KRAFT samþykkti einnig að frá og með 2026 muni keppendur í öldungaflokki á alþjóðmótum greiða mótagjöldin en KRAFT mun áfram greiða lyfjapróf.
