Skip to content

Ný lágmörk í opnum flokki

Skv. 7. gr. mótareglna KRAFT er stjórn KRAFT heimilt að ákveða lágmörk á Íslandsmeistaramótum og öðrum mótum.  Stjórn KRAFT hefur samþykkt að lágmörk verða sett á nýju keppnisári  2026 í opnum flokki. Lágmörkin gilda fyrir þrílyftu- og einna lyftu mót. 

Þar sem stuttur fyrirvari var á kynningu á lágmörkum hefur stjórn KRAFT ákveðið að eftirfarandi mót verða einnig lágmarkamót:

16. janúar –  ÍM í klassískri bekkpressu
1. febrúar – ÍM í kraftlyftingum með búnaði
1. mars – ÍM í bekkpressu með búnaði
11. apríl – Bikarmót í klassískum kraftlyftingum
23. maí – Byrjenda- og dómarapróf (er þegar lágmarkamót)

Keppendur í opnum flokki sem hafa ekki lágmörk munu verða skráðir í lágmarkahluta mótanna.  Þessir keppendur geta ekki slegið Íslandsmet eða unnið titla. 11. gr. í mótareglum KRAFT hefur verið uppfærð þ.s. lágmarkamót eru skilgreind sem flokkur.

Keppendum KRAFT er bent á að kynna sér mót fyrri hluta ársins ef þeir þurfa að ná lágmörkum fyrir mót seinni hluta keppnisársins.

Lágmörk í opnum flokki – klassík og með búnaði
Mótareglur KRAFT – 11.gr. uppfærð