Skip to content

Norðurlandamót unglinga 2026

NM unglinga verður haldið um næstu helgi, 11.-13. september. Mótið er að þessu sinni í Finnlandi eða í bænum Kankaanpää. Keppt er í þrílyftu og bekkpressu (báðar greinar klassískar og með búnaði). Góður hópur keppenda mætir frá Íslandi og þeim til aðstoðar verða Auðunn Jónsson, Elín Melgar Aðalheiðardóttir og Gabríel Ómar Hafsteinsson. Helgi Hauksson mun dæma á mótinu. Beint streymi verður frá mótinu þar sem einnig verður að finna úrslit : https://liftlog.ursuslive.com/?lang=en

Hér má finna tímaplan mótsins : TÍMAPLAN

Keppnisdagskrá íslenska hópsins er eftirfarandi:

KLASSÍSK ÞRÍLYFTA:

FÖSTUDAGINN 11. SEPTEMBER – kl. 07.00 að íslenskum tíma
Holl 1
Tara Szklenar, -57 kg telpnaflokkur
Guðrún Ásgeirsdóttir, -69 kg telpnaflokkur
Holl 2
Eva Valdimarsdóttir, -57 kg unglingaflokkur

FÖSTUDAGINN 11. SEPTEMBER – kl. 10.30 að íslenskum tíma
Holl 3
Herdís Anna Ólafsdóttir, -63 kg unglingaflokkkur

FÖSTUDAGINN 11. SEPTEMBER – kl. 14.30 að íslenskum tíma
Holl 4
Tristan Hjaltason, -74 kg unglingaflokkur

LAUGARDAGINN  12. SEPTEMBER – kl. 10.30 að íslenskum tíma
Holl 10
Gunnar Pálmi Snorrason, -120 kg unglingaflokkur

KLASSÍSK BEKKPRESSA:

LAUGARDAGINN 12. SEPTEMBER – kl. 13.30 að íslenskum tíma
Gabríel Sigþórsson, -74 kg drengjaflokkur
Axel Jónsson, -93 kg drengjaflokkur
Tara Szklenar, -57 kg telpnaflokkur