Um síðustu helgi var haldið Norðurlandamót unglinga og að þessu sinni voru gestgjafar Finnland. Keppt var í þrílyftu og í bekkpressu, klassík og með búnaði. Íslensku keppendurnar kepptu allir í klassík, sex keppendur í þrílyftu og tveir keppendur í bekkpressu. Margir nældu sér í verðlaun og/eða persónulegar bætingar. Innilega til hamingju, öllsömul!
Heildarúrslit má finna á heimasíðu NPF.
ÚRSLIT – KLASSÍSK ÞRÍLYFTA
Tara Szklenar, -57 kg telpnaflokkur, 1. sæti.
Guðrún Ásgeirsdóttir, -69 kg telpnaflokkur, 1. sæti
Eva Valdimarsdóttir, -57 kg unglingaflokkur, 4. sæti
Herdís Anna Ólafsdóttir, -63 kg unglingaflokkkur, 6. sæti
Tristan Hjaltason, -74 kg unglingaflokkur, 3. sæti
Gunnar Pálmi Snorrason, -120 kg unglingaflokkur, 5. sæti
ÚRSLIT – KLASSÍSK BEKKPRESSA
Gabríel Sigþórsson, -74 kg drengjaflokkur, 1. sæti
Axel Jónsson, -93 kg drengjaflokkur, 1. sæti
