Skip to content

Námskeiðið KRAFTLYFTINGAÞJÁLFARI 1 – SÉRGREINAHLUTI verður haldið í vetur

Námskeiðið er partur af þjálfaramenntun ÍSÍ og er fyrir þá sem hafa lokið ÍSÍ Þjálfara 1 – almennum hluta. Hér er um menntun félagsþjálfara að ræða, styrkt af KRAFT og ÍSÍ. Markmiðið er að þjálfarinn, að loknu námi, nýti þekkingu sína í starfi innan félagsins og sambandsins, en skráning fer eingöngu fram gegnum félögin. Kennt er í þremur lotum og búið er að tímafesta fyrstu lotuna en hún er helgina 25. -26. október. Önnur og þriðja lota verða á vorönn 2026. Hámarksfjöldi nemenda er 8. Skráningafrestur er til 10. október. Nánari upplýsingar veitir Lára (lara@kraft.is).