Menningarbikarinn í bekkpressu var haldinn laugardaginn 22. ágúst á Menningarnótt Reykjavíkurborgar. Þetta er í þriðja skiptið sem Bikarmeistaramót KRAFT í bekkpressu er haldið sem hluti af hátíðarhöldunum í kringum Menningarnótt. Keppt var í klassískri bekkpressu og bekkpressu með búnaði. Mótið var haldið á Kjarvalsstöðum í annað skiptið og mótshaldari var Lyftingadeild Ármanns. Eins og í fyrra var keppnispallurinn í tjaldi á milli álma Kjarvalsstaða og bauð mótshaldari þar að auki gestum upp á pulsur og hoppukastala. Veðrið á meðan á mótinu stóð hefði mátt vera betra en þrátt fyrir það mættu margir og hvöttu keppendur. Gestir og gangandi höfðu tækifæri til að staldra við inni í tjaldinu og nokkuð margir létu veðrið ekki á sig fá og stóðu fyrir utan og horfðu inn. Fjölmörg Íslandsmet féllu og margir áttu persónulegar bætingar.
Úrslit í klassískri bekkpressu.
Úrslit í bekkpressu með búnaði.
