Í dag fór fram Menningarbikarinn í klassískri bekkpressu og bekkpressu með búnaði. Heitið á mótinu vísar í Menningarnótt Reykjavíkurborgar sem er haldið upp á í dag. Þetta var í annað skiptið sem Bikarmót Kraftlyftingasambands Íslands í bekkpressu er haldið á sjálfa Menningarnótt. Mótshaldari var kraftlyftingadeild Ármanns í samstarfi við SBD Ísland. Mótsstaður var ekki af verri endanum en hann var Kjarvalsstaðir á Klambratúni en Kjarvalsstaðir eru hluti af Listasafni Reykjavíkur. Upphitun og vigtun fóru fram inni á safninu en keppnin fór fram undir tjaldi í garðinum á milli sýningarálma. Fjöldi manns lagði leið sína til að fylgjast með og létu ekki rigningarsuddann hafa áhrif á sig. Öll keppnsgjöld runnu í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Fjöldi Íslandsmeta féllu í öllum aldursflokkum og margir bættu sinn persónulega árangur.
Sjá öll úrslit í KLASSÍSKRI BEKKPRESSU.
Sjá öll úrslit í BEKKPRESSU MEÐ BÚNAÐI.
Stigahæstu einstaklingar urðu þessir:
KVENNAFLOKKUR – KLASSÍSK BEKKPRESSA
Konur opinn flokkur: Kristín Þórhallsdóttir (AKR)
Konur unglingaflokkur: Eva Dís Valdimarsdóttir (LFK)
Konur Master: Guðný Ásta Snorradóttir (KFR)
KARLAFLOKKUR – KLASSÍSK BEKKPRESSA
Karlar opinn flokkur: Sigurður Hafsteinn Jónsson (LFK)
Karlar Master: Ríkharð Bjarni Snorrason (BOL)
KVENNAFLOKKUR – BEKKPRESSA MEÐ BÚNAÐI
Konur opinn flokkur : Kristjana Steingrímsdóttir (LFK)
KARLAFLOKKUR – BEKKPRESSA MEÐ BÚNAÐI
Karlar opinn flokkur: Guðfinnur Snær Magnússon (BRE)
Karlar Master: Davíð Þór Penalver (MAS)

