Það styttist Menningarbikarinn sem haldinn verður á Menningarnótt, laugardaginn 23. ágúst. Keppt er í klassískri bekkpressu og bekkpressu með búnaði. Mótið er aldursflokkaskipt. Mótshaldari er Lyftingadeild Ármanns í samstarfi við SBD Ísland.
Mótið verður haldið á Kjarvalsstöðum, Flókagötu 24. Ef veður leyfir þá verður keppnin utanhúss í garðinum á milli vestur- og austurálmu listasafnsins, fyrir framan veitingasöluna. Keppendur koma inn um aðalinngang Kjarvalsstaða (frá Flókagötu), í gegnum veitingastað og þar við endann er vigtun og upphitun.
TÍMAÁÆTLUN
Klassísk bekkpressa – Allir keppendur
Vigtun kl. 10.00 / Keppni kl. 12.00
Bekkpressa með búnaði – Allir keppendur
Vigtun kl. 11.30 / Keppni kl. 13.30

