Skráning er hafin á Menningarbikarinn í bekkpressu (klassísk og með búnaði) sem haldið verður á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst. Mótshaldari er Lyftingadeild Ármanns. Staðsetning verður auglýst síðar sem og endanleg tímaáætlun þegar keppendafjöldi liggur fyrir. Rétt er að benda á lágmörk sem tók gildi á síðasta ári, þau má finna hér.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur: nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer). Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningu skal senda á netfangið jonasdottir74@gmail.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 1. ágúst. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 8. ágúst. Keppnisgjald er 7.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
