Skip to content

Luxembourg Open Invitational / Small Nations Cup

Í vikunni kom tölvupóstur frá lúxemborgíska kraftlyftingasambandinu þar sem staðfest var að þau munu halda eins og fyrr í ár Luxembourg Open Invitational / Small Nations Cup – Powerlift meet. Þetta mót er hugsað sem undirbúningur fyrir það að koma kraftlyftingum inn á Smáþjóðaleikana. Keppt er í klassískum kraftlyftingum og verður mótið haldið 20.-22. febrúar 2026 í Hamm í Lúxemborg. Þetta mót er með C-lágmörk.

Mótið var haldið í fyrsta skiptið í ár en engar fréttir höfðu borist um áframhald af þessari keppni fyrr en í vikunni. Þetta mót er því ekki á þeim lista alþjóðlegra móta sem Kraftlyftingasambandið sendi inn í styrkumsókn til Afrekssjóðs ÍSÍ. Keppendur myndu því ekki verða styrktir af KRAFT eins og í fyrirfram ákveðnum mótum. Þeir gætu hins verið styrktir af sínu íþróttafélagi.

Þetta er nokkuð stuttur fyrirvari sem lúxemborgíska sambandið gefur en stjórn KRAFT ákvað samt að setja inn frétt á miðla KRAFT og athuga með áhuga félaga á að senda keppendur. Vinsamlegast sendið tölvupóst á [email protected] með afriti á [email protected]. Stjórn KRAFT ítrekar að þátttaka Íslands hefur ekki verið staðfest.