Skip to content

Landsliðsverkefni 2026

Stjórn KRAFT hefur samþykkt tillögu landsliðsnefndar að verkefnum fyrir árið 2026. Eftirfarandi keppendur hafa verið valdir til þátttöku á alþjóðamótum árið 2026 en fyrsta alþjóðamót ársins er EM öldunga í klassískum kraftlyftingum. Keppendalistinn er birtur með fyrirvara um villur sem kunna að hafa slæðst inn og breytingar sem gera þarf síðar á árinu. Sumir keppendur eiga t.d. eftir að ná lágmörkum og eins getur þurft að gera breytingar vegna fjöldatakmarkana á mótin.

Minnt er á landsliðsfundinn sem þegar hefur verið auglýstur. Fundurinn verður haldinn 24. janúar kl. 13.00 á 2.hæð í íþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ. Það er skyldumæting á þennan fund fyrir þá sem eru í landsliðvali.

Landsliðsval 2026