Stjórn KRAFT hefur samþykkt lágmörk fyrir árið 2027. Lágmörk hafa áður verið skilgreind sem 100% lágmörk, A-lágmörk 90 %, B-lágmörk 85 % og C-lágmörk 80%. Ný lágmörk gera ráð fyrir 2,5 % hækkun ofan á hefðbundinn útreikning og er grundvöllurinn fyrir þeim breytingum að geta hækkað styrki til A-landsliðsins.
Uppfærð Reglugerð um styrkveitingar vegna keppni erlendis og annars kostnaðar verður birt á næstunni.
Í uppfærðri reglugerð munu A og B lágmörk veita þátttökurétt á HM og A, B og C lágmörk þátttökurétt á EM. Ný D lágmörk eru nú sett inn til að veita þátttökurétt á C mótum (t.d. NM og V-Evrópumóti) en án styrkveitinga. Með reglunum er verið að aðskilja þátttökurétt og styrkveitingar, með það í huga að auka styrkveitingar til þeirra sem standa fremst í íþróttinni sem er í samræmi við Afreksstefnu KRAFT. Breytingin mun gefa fleirum færi á að fara á mót þó að keppendur fái ekki styrki á þau.
