Skip to content

Keppnisreglur IPF í kraftlyftingum – gilda frá 1. janúar 2026

IPF hefur gefið út uppfærslu á Keppnisreglum IPF í kraftlyftingum, gilda frá 1. janúar 2026. Þær munu birtast á heimasíðu IPF á næstu dögum en hér fyrir neðan er linkur á pdf skjal. Uppfærðar reglur munu birtast á íslensku fljótlega. Nú er stutt í ÍM í klassískri bekkpressu og þess vegna er öllum bent sérstaklega á breytingar um framkvæmd bekkpressu. 

Keppnisreglur IPF í kraftlyftingum – á ensku

Listi yfir breytingar (með fyrirvara):

  1. Breytingar á framkvæmd bekkpressu.
  2. Má vera í en ekki nauðsynlegt í réttstöðulyftu að nota háa sokka yfir búning með síðum skálmum.
  3. Skór verða að vera reimaðir / franskur rennilás fastur. Má ekki vera laust á pallinu.
  4. Keppendur mega fá aðstoð við að koma sér í hnéhlífar.
  5. Hálsmen verða að vera undir bol, má ekki hafa í munni við framkvæmd lyftu eða á pallinum.
  6. Staðsetning stangar á baki í framkvæmd hnébeygju (eng. „no lower than the posterior deltoid level,“).
  7. Hendur, þumlar og fingur verða að grípa um stöngina í hnébeygju.
  8. Ekki er leyfilegt að ganga undir stöng við lok hnébeygju.
  9. Í bekkpressu má ekki nálgast rekka frá ,,höfðagafli“.
  10. Hendur, þumlar og fingur verða að grípa um stöngina í bekkpressu.
  11. Læst hné í lok réttstöðulyftu (eng. „On completion of the lift the knees shall be locked in a straight position. The front bundle of the deltoid muscle should be placed behind the imaginary projection of the bar.). Sjá mynd í nýjum tæknireglum á bls. 30.
  12. Bannað að stíga yfir stöng þegar réttstöðulyftu er lokið.
  13. Breytingar um framkvæmd vigtunar (klæðnaður osfrv.).
  14. Ekki vera með slegið hár, frágangur þannig að trufli ekki sýn dómara. Gildir um allar lyftur.
  15. Keppendur eiga að sýna kurteisi og virðingu á pallinum frá því að þeir koma á og fara af pallinum t.d. ekki henda belti á gólfið.
  16. Reglur um notkun upptaka af lyftum við vinnu kviðdóms.
  17. Fjöldi alþjóðadómara á mótum.
  18. Fjöldi alþjóðlegara móta og mótum innanlands áður en Cat1 próf er tekið.
  19. Landsdómari getur verið TC.
  20. Viðbætur við kröfur til aðalþjálfara.