Skip to content

Íslandsmeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum – Úrslit

Um helgina fór fram Íslandsmeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum og mótshaldari var Kraftlyftingafélag Akraness. Mótið var mjög fjölmennt og fulltrúar í öllum aldursflokkum. Það er óhætt að segja að fjöldinn allur af Íslandsmetum var sleginn sem og æði margar persónulegar bætingar. KRAFT óskar öllum keppendum innilega til hamingju með mótið. 

Stigahæstu einstaklingarnir í kvennaflokki urðu :

  1. Guðný Ásta Snorradóttir – M2 (KFR)
  2. Elsa Pálsdóttir – M3 (Massi)
  3. Sigríður Snorradóttir – M2 (KFR)

Stigahæstu einstaklingarnir í karlaflokki urðu :

  1. Benedikt Björnsson – M1 (Massi)
  2. Trausti Traustason – M1 (Massi)
  3. Kári Rafn Karlsson – M1 (AKR)

Sjá öll úrslit HÉR.