

Um helgina var haldið Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu. Mótshaldari var Lyftingadeild KA. Keppt var í klassískri réttstöðulyftu og réttstöðulyftu með búnaði. Góður fjöldi af keppendum á öllum aldri mætti í höfuðstað Norðurlands til að rífa í stöngina. Margir náðu persónulegum bætingum. Samtals voru slegin þrjú Íslandsmet. Elsa Pálsdóttir (-76 kg öldungaflokkur 3) sló Íslandsmet bæði í öldungaflokki 2 og 3 með 172,5 kg lyftu. Viktor Samúelsson (-120 kg opinn flokkur) sló Íslandsmet í opnum flokki með 321 kg lyftu. KRAFT óskar öllum keppendum til hamingju með mótið.
Hér má finna ÚRSLIT.
