Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum í opnum flokki sem haldið verður laugardaginn 4. október. Mótshaldari er kraftlyftingadeild Breiðabliks og verður mótið haldið í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir. Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur: nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer). Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Minnt er á tilmæli stjórnar KRAFT til félaga um að stýra þátttöku á þessu móti þannig að reynslumeiri keppendur í opnum flokki séu í forgangi en byrjendur og keppendur í öðrum aldursflokkum keppi frekar á unglinga- öldunga- og byrjendamótum. Við val á keppendum má horfa til þess að viðkomandi hafi náð 70 IPF GL stigum. Sjá fyrri fréttatilkynningu um þetta: https://kraft.is/im-i-klassiskum-kraftlyftingum-tilmaeli-til-felaga-vardandi-fjolda-keppenda/
Einnig er minnt á að keppnisreglur IPF en þar eru skorður settar varðandi aldur þátttakenda á mót í opnum flokki: Opin mót kvenna og karla eru leyfð keppendum frá 1. janúar þess almanaksárs er 19 ára aldri er náð. Keppendum í öldungaflokkum 3 og 4 er ekki heimilt að keppa í opnum flokki.
Skráningu skal senda á netfangið robert@kjaran.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 13. september. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 20. september. Keppnisgjald er 8.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
