Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum sem haldið verður laugardaginn 24. október. Mótshaldari er Lyftingadeild Stjörnunnar og verður mótið haldið í Miðgarði í Garðabæ. Endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir.
Rétt er að benda á lágmörk í opnum flokki, þau má finna HÉR.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur: nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer). Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningu skal senda á netfangið lyftingar@stjarnan.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 3. október. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 10. október. Keppnisgjald er 9.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
