Skip to content

Íslandsmeistaramótið í klassískri bekkpressu – Tímaáætlun

Íslandsmeistaramótið í klassískri bekkpressu verður haldið sunnudaginn 18. janúar. Mótshaldari er Kraftlyftingafélag Reykjavíkur. Mótið verður haldið í húsakynnum World Class á Suðurströnd á Seltjarnarnesi. Gengið er inn á vesturhlið um neyðarútgang World Class (rampi við enda hússins). 

Athugið að keppendur og þjálfarar / aðstoðarmenn sem hafa aðgang að keppnissvæði og vigtun fá stimpil. Við minnum því félög á að ALLIR aðstoðarmenn þurfa að vera skráðir.

TÍMAÁÆTLUN – Sunnudagur 18 janúar.

Vigtun kl. 08.00 – Allir keppendur

Keppni kl.10.00 

Holl 1: Öldungaflokkur (kvk og kk)
Holl 2: Unglingaflokkur og telpna- og drengjaflokkur (kvk og kk)
Holl 3: Opinn flokkur (kvk og kk)