Skip to content

Íslandsmeistaramótið í klassískri bekkpressu – Skráning hafin

Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótið í klassískri bekkpressu sem haldið verður sunnudaginn 18. janúar 2026. Mótið er aldursflokkaskipt. Mótshaldari er Kraftlyftingafélag Reykjavíkur. Mótið verður haldið í húsakynnum World Class á Suðurströnd á Seltjarnarnesi. Gengið er inn á vesturhlið um neyðarútgang World Class (rampi við enda hússins). Endanleg tímaáætlun verður auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir. 

Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, þyngdar- og aldursflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer).  Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.

Hér er um meistaramót að ræða og gildir því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).

Skráningu skal senda á netfangið akarason@gmail.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti sunnudaginn 28. desember. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis sunnudaginn 4. janúar. Keppnisgjald er 6.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.