Skip to content

Íslandsmeistaramótið í klassískri bekkpressu – Beint streymi

Íslandsmeistaramótið í klassískri bekkpressu fer fram á morgun sunnudaginn 18. janúar 2026. Mótið er aldursflokkaskipt. Mótshaldari er Kraftlyftingafélag Reykjavíkur. Mótið verður haldið í húsakynnum World Class á Suðurströnd á Seltjarnarnesi. Gengið er inn á vesturhlið um neyðarútgang World Class (rampi við enda hússins). 

Beint streymi er frá mótinu á You Tube síðu KRAFT : BEINT STREYMI