Skip to content

Íslandsmeistaramótið í bekkpressu með búnaði  – Skráning hafin

Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótið í bekkpressu með búnaði sem haldið verður laugardaginn 28. febrúar. Mótið er aldursflokkaskipt. Mótshaldari er Lyftingadeild Ármanns og verður mótið haldið í húsakynnum deildarinnar í Laugardalnum. Endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir. Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur: nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer).  Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.

Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).

Skráningu skal senda á netfangið jonasdottir74@gmail.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 7. febrúar.  Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis laugardaginn 14. febrúar. Keppnisgjald er 6.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.