Skip to content

HM unglinga í klassískum kraftlyftingum – Sebastiaan með silfur í hnébeygju

Á lokadegi Heimsmeistaramóts unglinga í klassískum kraftlyftingum átti Ísland þrjá fulltrúa. Það voru þeir Benjamín Fanndal Sturluson (-105 kg unglingaflokkur), Róbert Guðbrandsson (-120 kg unglingaflokkur) og Sebastiaan Dreyer (-120 kg unglingaflokkur).

Benjamín var fyrstur á keppnispallinn og átti góðan dag. Hann opnaði í hnébeygju á þægilegum 245 kg sem var jöfnun á hans besta. Hækkaði í 257,5 kg sem hreyfðust vel og djúp beygja eins og fyrsta. Benjamín kláraði síðan hnébeygjuna með flottri 265 kg beygju. Í heild 20 kg persónuleg bæting. Í bekkpressu opnaði Benjamín með 185 kg á stönginni sem flugu upp. Hækkaði í 195 kg í annarri sem hreyfðust líka vel. Í lokabekknum reyndi Benjamín við að bæta sitt eigið Íslandsmet um 4,5 kg þegar 205 kg var hlaðið á. Fór langt upp af kassa en náði ekki að klára lyftunga. Benjamín opnaði í réttstöðulyftu með 265 kg. Í annarri umferð hækkaði hann í 280 kg, aðeins 5 kg frá hans besta. Í lokalyftunni var 287,5 kg hlaðið á sem var tilraun til persónulegrar bætingar um 2,5 kg og það gekk eftir. Samanlagður árangur varð 747,5 kg sem er bæting á hans eigin Íslandsmeti um 13 kg. Innilega til hamingju með metið, bætingarnar og mótið, Benjamín !

Seinna mættu þeir kappar Róbert og Sebastiaan á keppnispallinn.

Róbert opnaði í hnébeygju með 250 kg sem hreyfðust vel. Hækkaði um 20 kg og kláraði 270 kg með þrjú hvít ljós. Í lokabeygjunni voru 280 kg á stönginni en Róbert náði ekki klára lyftuna í þetta skiptið. Í bekkpressu opnaði Róbert með léttum 175 kg, hækkaði í 185 í annarri sem hann kláraði af öryggi. Róbert meldaði 192,5 kg í þriðja bekknum sem var tilraun til 2,5 kg perónulegrar bætingar en stöngin stoppaði á miðri leið upp. Í réttstöðulyftu opnaði Róbert með þægilegum 240 kg. Hækkaði í 257,5 kg í annarri sem hann negldi. Í lokalyftunni var 270 kg hlaðið á stöngina sem var tilraun til 2,5 kg persónulegrar bætingar. Róbert gaf allt í þetta en gekk ekki alveg upp í dag. Samanlagður árangur varð 712,5 kg. Innilega til hamingju með mótið, Róbert !

Sebastiaan opnaði með 300 kg á stönginni í hnébeygju sem hreyfðust hratt og örugglega. Í annarri hnébeygju voru 317,5 kg á stönginni sem hreyfðust jafnvel betur en fyrsta. Í lokabeygjunni var 330 kg hlaðið á sem var tilraun til bætingar á eigin Íslandsmetum um 5 kg í opnum flokki og unglingaflokki. Sebastiaan kláraði lyftuna af öryggi og glæsileg ný Íslandsmet í hús. Þriðja hnébeygjan tryggði Sebastiaan síðan silfur í hnébeygju í flokknum.  Sebastiaan opnaði í bekkpressu með 172,5 kg sem flugu upp. Sama gilti um aðra lyftu með 182,5 kg á stönginni. Í þriðju bekkpressunni voru 190 kg á stönginni sem Sebastiaan lyfti örugglega og þar með 5 kg persónuleg bæting. Sebastiaan opnaði í réttstöðulyftu með 265 kg á stönginni sem hreyfðust vel. Hækkaði í 275 kg í annarri sem hann kláraði eins og fyrstu. Í lokalyftunni voru 282,5 kg, jöfnun á hans besta, en Sebastiaan náði ekki að klára hana í dag. Samanlagður árangur varð 795 kg sem er 5 kg persónuleg bæting. Innilega til hamingju með silfrið, metin og mótið, Sebastiaan !