Ragnar Ingi Ragnarsson var fyrstu á keppnispallinn af íslenska hópnum. Hann keppir í -66 kg drengjaflokki (sub-junior).
Ragnar Ingi mætti af krafti á pallinn. Hann opnaði með 197,5 kg í hnébeygju og fékk þrjú hvít ljós. Í annarri lyftu hækkaði hann í 210 kg en náði ekki að klára lyftuna. Sama þyngd var á stönginni í þriðju hnébeygju, Ragnar kláraði hana en lyftan dæmd ógild vegna dýptar.
Í bekkpressu átti Ragnar Ingi frábæran dag. Hann opnaði á 147,5 kg í fyrstu, hækkaði síðan í 152,5 kg og kláraði röðina örugglega með 155 kg í lokalyftunni. Allar lyfturnar voru bætingar á hans eigin Íslandsmeti. Ragnar Ingi tryggði sér örugglega gull í bekkpressu með 5 kg forskoti á næsta mann.
Ragnar Ingi opnaði af öryggi með 220 kg á stönginni í réttstöðulyftu. Hann hækkaði í 227,5 kg í lyftu tvö en náði ekki að klára og gripið gaf sig. Í þriðju lyftu var hækkað í 232,5 kg til að berjast um bronsið í samanlögðu en því miður gekk það ekki upp í þetta skiptið.
Samanlagður árangur varð 572,5 kg og 5.sæti í flokknum í samanlögðu. Innilega til hamingju með metin, bekkpressugullið og mótið, Ragnar Ingi !
Næst á keppnispallinn er Guðrún Ásgeirsdóttir. Hún keppir í -69 kg telpnaflokki (sub-junior) en keppnin er kl. 12.00 að íslenskum tíma nk. sunnudag 23. ágúst. Beint streymi á YOU TUBE rás IPF.

