Skip to content

HM unglinga í klassískum kraftlyftingum – Haniem með Íslandsmet í réttstöðulyftu

Þriðji keppandinn í íslenska hópnum var Haniem Khalid sem mætti ákveðin á keppnispallinn í dag. Haniem keppir í -57 kg unglingaflokki. Hún opnaði í hnébeygju á þægilegum 120 kg. Í annarri hækkaði Haniem í 130 kg en lyftan var dæmd ógild vegna dýptar. Haniem hins vegar massaði þá þyngd örugglega í þriðju lyftu. Haniem opnaði í bekkpressu á 67,5 kg sem flugu upp. Hækkaði í 72,5 kg í annarri sem hún kláraði vel. Í þriðju bekkpressunni voru 77,5 kg á stönginni sem Haniem lyfti af öryggi og var sú lyfta jöfnun á hennar besta. Í réttstöðulyftu opnaði Haniem á 147,5 kg sem hreyfðust hratt. 10 kg var bætt við í annarri lyftu og massaði Haniem 157,5 kg örugglega og þar með bæting á hennar eigin Íslandsmeti um 2 kg. Í lokalyftunni voru 165 kg á stönginni en Haniem náði ekki að klára lyftuna að þessu sinni. Samanlagður árangur varð 365 kg sem er aðeins 1 kg frá hennar besta í flokknum. Innilega til hamingju með metið og mótið, Haniem !