Næsti keppandi úr íslenska hópnum var Guðrún Ásgeirsdóttir. Hún keppir í -69 kg telpnaflokki (sub-junior). Hún opnaði á öruggri 107,5 kg hnébeygju. Hækkaði í 115 kg í næstu sem hún massaði en lyftan var jöfnun á hennar besta. Í þriðju beygju voru 120 kg á stönginni. Guðrún kláraði lyftuna en hún var dæmd ógild vegna dýptar. Guðrún átti frábærar lyftur Í bekkpressu. Hún opnaði á léttum 72,5 kg. Hækkaði í 77,5 kg í næstu sem hún lyfti af öryggi. Í þriðju bekkpressunni var 82,5 kg hlaðið á sem var tilraun til bætingar á hennar eigin Íslandsmeti um 1,5 kg. Guðrún kláraði þessa þyngd af öryggi og nýtt Íslandsmet í hús og þrjú hvít ljós í öllum lyftum í bekkpressu. Í réttstöðulyftu opnaði Guðrún með 135 kg sem hreyfðust vel og þrjú hvít ljós. Guðrún hækkaði í annarri lyftu í 142,5 kg sem hreyfðust ekki alveg eins og skyldi. Í þriðju og lokalyftunni var hækkaði í 147,5 kg sem Guðrún gaf allt í og kláraði þá þyngd af festu og þrjú hvít ljós. Samanlagður árangur varð 345 kg aðeins 1 kg frá hennar eigin Íslandsmeti og fjórða sætið í samanlögðu. Innilega til hamingju með metið og mótið, Guðrún !
Næst á keppnispallinn af íslenska hópnum er Haniem Khalid. Hún keppir í -57 kg unglingaflokki og hefst keppnin þriðjudaginn 25. ágúst kl. 08.00 að íslenskum tíma.
Beint streymi á YOU TUBE síðu IPF.

