Skip to content

HM unglinga í klassískum kraftlyftingum – Benóný Helgi með silfur í bekkpressu

Ísland átti tvo fulltrúa á keppnispallinum í dag. Það voru þau Signý Lára Kristinsdóttir og Benóný Helgi Benónýsson. Signý keppir í -76 kg unglingaflokki og Benóný í -93 kg unglingaflokki.

Signý mætti öflug á keppnispallinn. Hún átti frábæra seríu í hnébeygju. Signý opnaði í hnébeygjunni með mjög öruggum 160 kg. Önnur hnébeygjan með 175 kg hreyfðist alveg jafnvel og sú fyrsta. Þessi beygja var bæting á hennar eigin Íslandsmeti um 4 kg. Signý hækkaði í 182,5 kg í þriðju hnébeygjunni sem hún negldi af öryggi. Lyftan var aftur bæting á Íslandsmeti unglinga sem og nýtt Íslandsmet í opnum flokki. Í bekkpressu opnaði Signý á 87,5 kg sem flugu upp. Hækkaði í 95 kg í annarri umferð sem var jöfnun á hennar besta. Í lokalyftu bekkpressu reyndi Signý við 100 kg en þau vildu ekki upp að þessu sinni. Í fyrstu réttstöðulyftunni var 175 kg hlaðið á og hreyfðust þau vel hjá Signýju. Hún hækkaði um 15 kg í annarri lyftu og voru 190 kg aðeins 0,5 kg frá hennar besta. Aðeins vantaði herslumuninn að klára lyftuna þegar stöngin rann úr greipum hennar. Sama þyngd var á stönginni í lokalyftu en stoppaði rétt fyrir ofan hné. Samanlagður árangur varð 452,5 kg, aðeins 4 kg frá hennar eigin Íslandsmeti. Innilega til hamingju með metin og mótið, Signý Lára !

Benóný mætti einbeittur skömmu síðar á keppnispallinn. Hann átti alveg frábæran dag í öllum þremur greinunum. Benóný opnaði í hnébeygju með 245 kg á stönginni. Sú þyngd hreyfðist mjög vel og var hækkað um 15 kg í 260 kg og kláraði Benóný þá þyngd örugglega. Í lokalyftunni fóru 270 kg á stöngina sem var tilraun til bætingar á hans eigin Íslandsmeti um 7,5 kg. Benóný negldi þá lyftu af öryggi og nýtt Íslandsmet í hús. Benóný var fyrirfram tilnefndur hátt í bekkpressu og var því góður möguleiki ef allt gengi vel að hann myndi ná verðlaunasæti í þeirri grein. Hann opnaði á fisléttum 190 kg. Í annarri umferð hækkaði Benóný í 200 kg, aðeins 0,5 kg undir hans besta. Benóný negldi þyngdina og í lokalyftu í bekkpressu hækkaði hann í 205 kg. Sú þyngd var tilraun til bætingar á hans eigin Íslandsmet í unglingaflokki og opnum flokki. Benóný gaf allt í lyftuna og hlaut þrjú hvít ljós og nokkur ný Íslandsmet komin í hús. Lokalyftan í bekkpressu tryggði Benóný silfur í feykisterkum -93 kg flokki. Benóný opnaði í réttstöðulyftu með 270 kg, aðeins 5 kg undir hans besta. Þyngdin flaug upp og var hækkaði í 285 kg í annarri umferð sem hreyfðust alveg jafnvel og fyrsta og persónuleg bæting um 5 kg. Benóný kláraði mótið síðan með glæsilegri 300 kg lokalyftu í deddinu. Sú þyngd var jöfnun á Íslandsmeti í unglingaflokki og aftur persónuleg bæting.. Samanlagður árangur varð 775 kg sem er bæting á hans eigin Íslandsmeti um heil 37 kg. Benóný náði að fá þrjú hvít ljós í öllum lyftum og komast yfir 100 IPF GL stig en 775 gáfu honum 101.896225 IPF GL stig. Innilega til hamingju með silfrið, metin og mótið, Benóný Helgi !

Á morgun er lokadagur HM unglinga. Þá mæta þrír úr íslenska hópnum á keppnispallinn:

LAUGARDAGINN 29. ÁGÚST
Benjamín Fanndal Sturluson, -105 kg unglingaflokkur (junior) – kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Róbert Guðbrandsson, -120 kg unglingaflokkur (junior) – kl. 12.00 að íslenskum tíma.
Sebastiaan Dreyer, -120 kg unglingaflokkur (junior) – kl. 12.00 að íslenskum tíma

Beint streymi á YOU TUBE síðu IPF.