Alex Cambray Orrason mætti fyrstur af Íslendingunum á pallinn í dag. Hann keppir í -93 kg flokki og var í A-holli. Alex opnaði í hnébeygju með 320 kg á stönginni. Stöngin hreyfðist vel en því miður var beygjan ekki nógu djúp. Í annarri umferð voru sömu kíló sett á en aftur ekki nógu djúp. Alex massaði hins vegar örugglega þriðju lyftu með 320 kg og þrjú hvít ljós fyrir vikið. Í bekkpressu átti Alex alveg frábæra session. Allar lyfturnar flugu í gegn með þrjú hvít ljós á röðina. Allar þrjár lyfturnar öruggar. Fyrsta með 210 kg, önnur lyfta með 220 kg og þriðja með 227,5 kg. Persónuleg bæting um 2,5 kg. Í réttstöðulyftu opnaði Alex á 225 kg sem fóru þægilega upp. Í annarri lyftu voru 240 kg sett á en náði ekki að læsa í lokin. Í lokalyftunni reyndi Alex aftur við 240 kg sem í þetta skipti fóru örugglega upp og þrjú hvít ljós. Samanlagður árangur varð 787,5 kg. Innilega til hamingju með bætinguna og mótið, Alex !

