Heimsmeistaramótið í kraftlyftingum með búnaði
Mótið hófst í gær mánudaginn 10. nóvember. Mótið er haldið í borginni Cluj Napoca í Rúmeníu. Frá Íslandi mæta þrír nautsterkir keppendur. Það eru þau Agnes Ýr Rósmundsdóttir, Alex Cambray Orrason og Guðfinnur Snær Magnússon. Þjálfarar og aðstoðarmenn eru Hjálmar Andrésson, Júlían J.K. Jóhannsson og Lára Bogey Finnbogadóttir.
Beint streymi er frá mótinu á You Tube rás Olympics. Á Eurosport sjónvarpsrásinni verður sýnt beint frá keppni í A-hóp í -93 kg flokki en í þeim hóp er Alex okkar Cambray.
Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:
FIMMTUDAGINN 13. NÓVEMBER
Alex Cambray Orrason, -93 kg, kl. 17.00 að ísl. tíma (beint á Eurosport).
SUNNUDAGINN 16. NÓVEMBER
Agnes Ýr Rósmundsdóttir, +84 kg, kl. 08.00 að ísl. tíma.
Guðfinnur Snær Magnússon, +120 kg, kl. 08.00 að ísl. tíma.
ÁFRAM ÍSLAND !!
Special Olympics
Kraftlyftingakeppni Special Olympics er haldin á sama tíma í Cluj Napoca . Þetta er langstærsta SO kraftlyftingakeppnin til þessa en það verða 31 keppendur frá 9 löndum. Frá Íslandi mæta fimm flottir keppendur sem eru Aníta Ósk Hrafnsdóttir, Emil Steinar Björnsson og systurnar þrjár Guðrún Hulda Sigurjónsdóttir, María Sigurjónsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir. Þjálfarar eru Gunnar Pétur Harðarson og Lára Bogey Finnbogadóttir.
Keppnin fer fram þann laugardaginn 15. nóvember, kl. 08.00 að ísl. tíma.
Beint streymi er frá keppninni á You Tube rás Olympics.
ÁFRAM ÍSLAND !!

