Það voru tveir Íslendingar sem mættu á pallinn í dag, Agnes Ýr Rósmundsdóttir og Guðfinnur Snær Magnússon. Agnes í +84 kg flokki og Guðfinnur í +120 kg flokki.
Agnes Ýr átti frábæran dag á pallinum. Hrikalegar bætingar í öllum greinum. Í hnébeygju opnaði hún á 225 kg en fékk hana ógilda vegna dýptar. Agnes massaði þyngdina hins vegar í annarri beygju. Í þriðju hnébeygju voru 237,5 kg á stönginni og kláraði Agnes hana örugglega með þrjú hvít ljós. Heil 27,5 kg persónuleg bæting í hnébeygju. Bekkpressan byrjaði vel þegar Agnes lyfti 140 kg sem var 7,5 kg persónuleg bæting. Í annarri umferð lyfti Agnes síðan mjög örugglega 150 kg. Í lokalyftu bekkpressunnar reyndi Agnes við 155 kg en þau vildu ekki upp í þetta skiptið. Fyrsta lyftan í réttstöðulyftu með 180 kg á stönginnu flugu upp hjá Agnesi. Í annarri endurtók hún leikinn með öruggri 195 kg lyftu sem voru 12,5 kg persónuleg bæting. Í þriðju og lokalyftunni var 205 kg hlaðið á sem Agnes reif upp og kláraði lyftuna af öryggi. Samanlagður árangur varð 592,5 kg sem eru hrikaleg 67,5 kg persónuleg bæting. Innilega til hamingju með mótið og allar bætingarnar, Agnes Ýr !
Guðfinnur Snær átti líka flottan dag á pallinu. Í hnébeygju opnaði hann á 415 kg sem hreyfðust hratt en fékk ekki gilda vegna tæknivillu. Í annarri umferð var þyngdin hækkuðu um 10 kg í 425 kg sem Guðfinnur kláraði örugglega og bætti eigið Íslandsmet um 5 kg. Heilum 15 kg var bætt á stöngina fyrir þriðju lyftu, 440 kg á stönginni, sem Guðfinnur lyfti af sama öryggi og þar með aftur bæting á Íslandsmeti. Guðfinnur opnaði í bekkpressu á 310 kg lyftu sem hreyfðist vel. Í annarri lyftu bætti hann 15 kg á og kláraði 325 kg með stæl og 5 kg persónuleg bæting í hús. Guðfinnur reyndi við 335 kg í þriðju lyftu en gekk ekki upp að þessu sinni. Í réttstöðulyftu opnaði Guðfinnur á 305 kg en fékk ógilda vegna tæknivillu. Í annarri umferð var þyngdin hækkuð í 310 kg sem hann kláraði örugglega. Í lokalyftunni hækki Guðfinnur í 325 kg en þau vildu ekki upp að þessu sinni. Samanlagður árangur varð 1085 kg sem er 27,5 kg persónuleg bæting. Innilega til hamingju með Íslandsmetin og allar bætingarnar, Guðfinnur Snær !


