
Kristrún I. Sveinsdóttir var sú fyrsta af íslenska hópnum sem mætti á keppnispallinn fyrr í dag. Hún keppir í -52 kg flokknum. Kristrún opnaði í hnébeygju örugglega með 122,5 kg á stönginni. Í annarri umferð voru 130 kg sett á stöngina og kláraði Kristrún þyngdina með heldjúpri beygju. Í lokumferð hnébeygju fóru 135 kg á stöngina, aðeins 3 kg frá hennar eigin Íslandsmeti. Kristrún massaði lyftuna og kláraði hnébeygjuna með 3×3 hvít ljós. Í bekkpressu opnaði Kristrún með 75 kg sem flugu upp. Í annarri lyftu voru 80 kg á stönginni sem Kristrún kláraði af sama öryggi og fyrstu lyftu. Í lokaumferð bekkpressunnar hækkaði Kristrún í 85 kg sem var tilraun til bætingar á hennar eigin Íslandsmeti um 1.5 kg. Kristrún kláraði lyftuna og nýtt Íslandsmet í hús. Í réttstöðulyftu opnaði Kristrún á 140 kg sem hreyfðust vel. Kristrún hækkaði í 147,5 kg í annarri umferð sem hún kláraði af öryggi. Í lokalyftunni voru 155 kg hlaðið á stöngina, tilraun til bætingar á hennar eigin Íslandsmeti í réttstöðulyftu um 1.5 kg og jöfnunar á eigin Íslandsmeti í samanlögðu. Kristrún mætti peppuð á pallinn, stöngin fór upp fyrir hné en Kristrún náði ekki að klára lyftuna að þessu sinni. Samanlagður árangur varð 367,5 kg. Innilega til hamingju með metið og mótið, Kristrún !
Á þriðjudaginn 16. júní mætir næsti af íslenska hópnum. Það er Friðbjörn Bragi Hlynsson (-83 kg flokkur – B grúppa). Keppnin byrjar kl. 10.30 að íslenskum tíma.
Beint streymi frá mótinu er á YOU TUBE rás IPF.
Hér má sjá ÚRSLIT.
