
Kristín Þórhallsdóttir ríkjandi Evrópumeistari mætti síðdegis í gær á keppnispallinn en hún keppir í -84 kg flokknum. Í hnébeygju opnaði Kristín á 210 kg sem voru dæmt ógild vegna dýptar en kviðdómur snéri í gilda lyftu. Kristín meldaði í annarri beygju 220 kg sem hreyfðust vel. Í þriðju beygjunni negldi Kristín 225 kg örugglega en sú lyfta tryggði henni brons í hnébeygju. Kristín opnaði í bekkpressu með örugg 112,5 kg. Hún hækkaði í 117,5 kg í annarri, var dæmt ógild vegna tæknivillu en kviðdómur snéri lyftunni í gilda. Í þriðju umferð bekkpressunnar meldaði Kristín 120 kg sem fóru örugg upp en aftur dæmd ógild vegna tæknivillu og aftur snéri kviðdómur lyftunni í gilda lyftu. Kristín opnaði í réttstöðulyftu á léttum 210 kg. Í þriðju lyftu hækkaði hún í 222,5 kg sem hún kláraði örugglega. Í lokalyftunni fóru 230 kg á stöngina sem Kristín negldi. Sú lyfta var nýtt heimsmet í öldungaflokki 1 (M1) og samanlagður árangur 575 kg var einnig nýtt heimsmet í samanlögðu í þessum aldursflokki. Innilega til hamingju með heimsmetin, bronsið og mótið, Kristín!
