Tveir Íslendingar kepptu í gær.. Helgi Jón Sigurðsson var fyrri til að mæta á keppnispallinn en hann keppir í -120 kg flokknum. Hann átti frábæran hnébeygjudag, þrjú hvít ljós í öllum lyftunum. Helgi opnaði á fisléttum 280 kg. Hækkaði í 302,5 kg í annarri. Í þriðju beygju meldaði Helgi 312,5 kg sem hann negldi og 5 kg persónuleg bæting í hús. Í bekkpressu opnaði Helgi á léttum 182,5kg en lyftan dæmd ógild vegna tæknivillu. Hann hækkaði í 187,5 kg í annari sem hann kláraði örugglega. Í lokalyftu bekkpressunnar meldaði Helgi langþráð markmið, 200 kg. Því miður gekk það ekki alveg þennan daginn. Helgi opnaði í réttstöðulyftu með 300 kg á stönginni en þau flugu upp. Í annarri lyftu hækkaði Helgi í 315 kg sem fóru örugg upp. Þessi lyfta tryggði honum nýtt Íslandsmet í samanlögðu, 815 kg. Í lokadeddinu reyndi Helgi við nýtt Íslandsmet með 325 kg á stönginni, en kílóin vildu ekki upp að þessu sinni. Samanlagður árangur varð 815 kg. Innilega til hamingju með bætingar, metið og mótið, Helgi !

