Skip to content

Heimsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum hefst á morgun

Á morgun laugardaginn 13. júní hefst Heimsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum (opinn flokkur). Að þessu sinni er mótið haldið í borginni Druskininkai í Litháen. Upphaflega átti mótið að vera í Dubai en vegna ástandsins á þeim slóðum heimsins var mótið flutt á kunnuglegar slóðir. Alls mæta 355 keppendur frá öllum heiminum. Það er glæsilegur keppendahópur frá Íslands, samtals 7 keppendur. Yfirþjálfari er Auðunn Jónsson og honum til aðstoðar eru Laufey Agnarsdóttir og Hinrik Pálsson. Laufey mun einnig sinna dómgæslu á mótinu. Auðunn situr þing IPF fyrir hönd KRAFT. Þess má geta að samhliða þessu móti er haldið HM Special Olympics í kraftlyftingum.

Beint streymi er á YOU TUBE rás IPF.

Hér má sjá ÚRSLIT.

SUNNUDAGINN 14. JÚNÍ 
Kristrún I. Sveinsdóttir, -52 kg flokkur (B grúppa) – Holl 1 – kl. 07.00 að íslenskum tíma.

ÞRIÐJUDAGINN 16. JÚNÍ
Friðbjörn Bragi Hlynsson, -83 kg flokkur (B grúppa) – kl. 10.30 að íslenskum tíma.

FIMMTUDAGINN 18. JÚNÍ
Alexander Örn Kárason, -105 kg flokkur (B grúppa) – kl. 06.00 að íslenskum tíma.

LAUGARDAGINN 20. JÚNÍ
Helgi Jón Sigurðsson, -120 kg flokkur (B grúppa) – kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Kristín Þórhallsdóttir, -84 kg flokkur (A grúppa) – kl. 15.00 að íslenskum tíma.

SUNNUDAGINN 21. JÚNÍ
Hanna Jóna Sigurjónsdóttir, +84 kg (B grúppa) – Holl 1 – kl. 06.00 að íslenskum tíma.
Þorbjörg Matthíasdóttir, +84 kg (B grúppa) – Holl 1 – kl. 06.00 að íslenskum tíma.

Áfram Ísland !