Skip to content

Heimsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum – Hanna Jóna og Þorbjörg

Í dag kepptu síðustu tveir úr íslenska hópnum. Það voru þær stöllur Hanna Jóna Sigurjónsdóttir og Þorbjörg Matthíasdóttir, báðar keppa í +84 kg flokknum. 

Hanna Jóna opnaði í hnébeygju á þægilegum 192,5 kg. Í annarri hnébeygju hækkaði hún í 205 kg og fékk þrjú hvít ljós. Hanna meldaði 220 kg í þriðju beygju sem var tilraun til nýs Íslandsmets. Því miður gekk það ekki þennan daginn. Hanna opnaði í bekkpressu með 90 kg á stönginn. Í annarri umferð hækkaði hún í 95 kg sem hreyfðust vel. Hanna hækkaði í 97,5 kg í lokaumferð bekkpressunnar en þau vildu ekki upp að þessu sinni. Hanna opnaði í réttstöðulyftu með 195 kg. Í annarri umferð fóru 205 kg á og þau fóru örugg upp. Hanna meldaði 215 kg í síðustu umferð réttstöðunnar en því miður var ekki inni fyrir þeim þennan daginn. Samanlagður árangur varð 505 kg. Innilega til hamingju með mótið, Hanna Jóna!

Í hnébeygju opnaði Þorbjörg með 197,5 kg á stönginni sem hreyfðust hratt. Þorbjörg hækkaði í 207,5 kg í annarri sem hún negldi. Í þriðju beygju fóru 215 kg á stöngina sem er jöfnun á hennar besta. Þorbjörg kláraði þá þyngd af öryggi. Í bekkpressu opnaði Þorbjörg með 97,5 kg á stönginni. Hún hækkaði í 105 kg í annarri sem var jöfnun á hennar besta. Í þriðju umferð bekkpressunni meldaði Þorbjörg 107,5 kg sem hún kláraði og þar með persónuleg bæting um 2,5 kg.  Þorbjörg byrjaði réttstöðulyftuna með 180 kg á stönginni sem hreyfðust vel. Í annarri umferð var hækkaði í 192,5 sem hreyfðust eins og fyrsta. Í lokalyftunni voru 205 kg melduð sem var tilraun til nýs Íslandsmets í samanlögðu en því miður gekk það ekki upp í dag. Samanlagður árangur varð 515 kg. Innilega til hamingju með bætinguna og mótið, Þorbjörg !