Skip to content

Heimsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum – Friðbjörn

Annar á keppnispallinn af íslenska hópnum var Friðbjörn Bragi Hlynsson. Hann keppir í -83 kg flokki. Friðbjörn opnaði í hnébeygju á þægilegum 237,5 kg. Hann hækkaði í annarri umferð í 250 kg sem hreyfðust vel eins og fyrsta beygja. Í lokabeygjunni fóru 257,5 kg á stöngina sem Friðbjörn lyfti af öryggi. Í bekkpressu opnaði Friðbjörn á fisléttum 150 kg. Önnur lyfta hreyfðist líka vel með 157,5 kg á stönginni. Friðbjörn hækkaði í 162,5 kg sem hann negldi með þremur hvítum ljósum.  Fyrsta réttstöðulyftan hjá Friðbirni var þægileg með 277,5 kg á stönginni. Í lyftu tvö meldaði Friðbjörn 290 kg. Rétt undir lokin gaf gripið sig hins vegar. Í þriðju og lokalyftunni reyndi Friðbjörn aftur við 290 kg en gekk ekki heldur í það skiptið, kemur næst. Samanlagður árangur varð 697,5 kg. Til hamingju með mótið, Friðbjörn !

Á fimmtudaginn 18. júní mætir Alexander Örn Kárason á keppnispallinn. Hann keppir í -105 kg flokki, B grúppu. Keppnin byrjar kl. 06.00 að íslenskum tíma.

Beint streymi er á YOU TUBE rás IPF.

Hér má sjá GANG KEPPNI.