Skip to content

Heimsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum – Alexander Örn

Í dag var komið að Alexander Erni Kárasyni. Hann keppir í -105 kg flokknum. Alexander átti góðan dag í hnébeygju. Hann opnaði á léttum 280 kg. Í annarri beygju hækkaði Alexander um heil 22,5 kg og kláraði hann 302,5 kg örugglega. Alexander gerði síðan tilraun til bætingar á eigin Íslandsmeti um 10 kg í þriðju beygju þegar 315 kg var hlaðið á stöngina. Hann negldi þá lyftu örugglega og nýtt Íslandsmet í hús og allar hnébeygjur með þrjú hvít ljós. Í bekkpressu opnaði Alexander með 200 kg en lyftan var dæmd ógild vegna dýptar. Í annarri lyftu var sama þyngd melduð sem Alexander kláraði af festu. Alexander meldaði 210 kg í lokalyftu bekkpressunnar sem var tilraun til bætingar á eigin Íslandsmeti um 3 kg. Alexander kláraði lyftuna, fékk hana gilda en kviðdómur snéri við og dæmdi ógilda vegna tæknivillu. Í réttstöðulyftu opnaði Alexander á 285 kg sem hreyfðust vel. Hann hækkaði um 22,5 kg í annarri og lyfti 307,5 kg af öryggi, en lyftan var jöfnun á hans besta. Með þeirri lyftu bætti Alexander eigið Íslandsmet í samanlögðu um 2,5 kg eða 822,5 kg. Í lokalyftunni var 320 kg hlaðið á stöngina, en því miður í blálokin gaf gripið sig. Samanlagður árangur varð 822,5 kg. Innilega til hamingju með metin og mótið, Alexander !

Á laugardaginn 20. júní mæta tveir úr íslenska hópnum á keppnispallinn :

Helgi Jón Sigurðsson (-120 kg, B-grúppa) keppir kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Kristín Þórhallsdóttir (-84 kg, A-grúppa) keppir kl.15.00 að íslenskum tíma.

Beint streymi er á YOU TUBE rás IPF.

Hér má sjá GANG MÁLA.