
Þórunn Brynja Jónasdóttir reið á vaðið í dag og var sú fyrsta af íslenska hópnum sem steig á keppnispallinn á HM í bekkpressu. Hún keppti í klassískri bekkpressu, -84 kg, öldungaflokki 2. Opnunarþyngd Þórunnar var 85 kg sem flugu upp hjá henni. Í annarri umferð hækkaði Þórunn upp í 90 kg sem hún kláraði af öryggi. Sú þyngd var jöfnun á hennar eigin meti í bekkpressukeppni. Þórunn reyndi við 95 kg í lokalyftunni sem vildu því miður ekki upp að þessu sinni. Innilega til hamingju með mótið, Þórunn !
Fulltrúar Íslands mæta næst á keppnispallinn á þriðjudaginn 26. maí (klassísk bekkpressa):
Guðrún Ásgeirsdóttir, -69 kg telpnaflokkur, kl. 13.00 að íslenskum tíma.
Grímur Pétursson, -83 kg drengjaflokkur, kl. 15.30 að íslenskum tíma.
