Heimsmeistaramótinu í bekkpressu með búnaði lauk í dag. Elín Melgar Aðalheiðardóttir keppti í -76 kg opnum flokki. Elín opnaði með 122,5 kg á stönginni. Á leiðinni upp rakst stöngin í statífin sem tók hana úr ferli. Í annarri umferð með sömu þyngd kláraði Elín lyftuna með glæsibrag, 122,5 kg eru 2,5 kg persónuleg bæting. Í lokaumferð voru 132,5 kg melduð. Stöngin fór upp en lyftan dæmd ógild vegna tæknigalla. Lyfta tvö skilaði Elínu 6. sæti í flokknum. Til hamingju með bætinguna og mótið, Elín !

